Þjónusta
Hjá Hasar er lögð áhersla á góða þjónustu, faglega ráðgjöf og vönduð vinnubrögð.
Forsíða » Þjónusta
Þjónusta
Sérgrein okkar hjá Hasar ehf er lögn á gólfdúk, teppum, teppaflísum, veggfóðri og vínylparketi ásamt sjónfloti. Hjá Hasar er lögð áhersla á góða þjónustu, faglega ráðgjöf og vönduð vinnubrögð.
Flotuð og lökkuð gólf og veggir
Við höfum sérhæft okkur í flotuðum og lökkuðum gólfum. Við köllum þessi gólf sjónflotuð gólf.
Þetta eru falleg og mjög vinsæl gólf sem við notum lakk tækni til að gera endanlegt gólfefni úr floti.
Einnig gerum við gólf fyrir vöruhús, bílskúra og sambærilega fleti sem krefjast efna sem eru með harðara yfirborði.
Gólfin hjá okkur eru tvennskonar;
- Lituð Cemher flot
- Microcement efni
Þessi efni setjum við bæði á gólf, veggi og borðplötur.
Gólfefnabúðin er umboðsaðili Cemher á Íslandi.
Vinylparket
Vinylparket er orðið eitt mest selda gólfefnið á heimili, verslanir og vinnustaði. Stór hluti af okkar vinnu er lögn á vinylparketi og við þreytumst ekki á að dásama gæði þess gólfefnis.
Vinylgólf eru hljóðlaus, sterk og viðhaldsfrí gólf sem eru frábær í þrifum.
Við bjóðum hágæða vinilparket frá One Flor Europe til okkar viðskiptavina. Fyrirtækið býður upp á mjög breiða lita pallettu ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt og niður límt.
Teppaflísar
Teppaflísar er gólfefni sem hefur mjög góða hljóðvist og er því tilvalið á skrifstofur og hótel. Teppaflísar er hentug lausn þar sem hægt er að skipta út flísum ef einhverra hluta vegna kemur blettur eða gerist óhapp.
Við bjóðum teppaflísar frá stórum framleiðendum í Evrópu eins og Paragon, Shaw Contract, Fletco og Radici.
Teppi á stiga og heimili
Við bjóðum einnig gæða teppi á stigahús og heimili. Við bjóðum uppá að koma á staðinn og mæla stigann eða stigahúsið og gera tilboð í efni og vinnu, viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu.
Við bjóðum teppi frá stórum framleiðendum í Evrópu eins og Fletco, ITC, Best Wool, Belakos og sérofin Axminister teppi frá Radici.
Linoleum og heilir vinyldúkar
Stór hluti af okkar vinnu er lögn á linoleum dúk sem og vinyl vegg- og gólfdúk.
Vinilveggdúkur er tilvalinn á baðherbergi og önnur votrými og heill vinil gólfdúkur á rými sem er raki eða vatn.
Veggfóður
Veggfóður er vinsælt veggefni og gefur mikla möguleika. Við höfum í gegnum árin veggfóðrað nokkur af stærstu hótelum landsinns.
Ástæðan fyrir vinsældum veggfóðurs á hótel er lítið viðhald. Reglan er sú að líftími veggfóðurs er 20-25 ár á móti 3-5 ár á málningu.
Það gefur auga leið að það er mun hagstæðara að veggfóðra hótel. Við erum í sambandi við stóra framleiðendur af veggfóðri og ráðleggjum okkar viðskiptavinum í þeim efnum.
Gólferfnabúðin er með umboð fyrir veggfóður frá Arte, Élitis, Masureel, Phillip Jeffries, NLXL, Au fil des couleurs og Wall Dreamer.
Flotun og viðgerðir á gólfum
Við flotum yfir ójöfn gólf og réttum þau af ásamt því að flota yfir hitalagnir.
Við notum flot efni frá Ecodur til að byggja upp óslétt gólf og leggjum það út með hæðarpunktum til að fá hámarks árangur. Einnig notum við dúkaflot, viðgerðarefni, grunna og lím frá Ecodur.
Við leggjum áherslu á að nota myglufrí lím fyrir alla okkar límingu.
Það er mikilvægt að slétta gólf vel fyrir endanleg gólfefni bæði í nýbyggingum og eldra húsnæði.