Fáein orð
Um okkur
Hasar ehf er alhliða verktakafyrirtæki með áratuga reynslu, sem sérhæfir sig í gólfefnum og klæðningum á veggi. Okkar sérgrein eru lögn á gólfdúk, teppum, veggfóðri og vínylparketi ásamt
sjónfloti. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, faglega ráðgjöf og vönduð vinnubrögð.
Við sinnum hvort heldur sem er stórum verkum, fasteignafélögum og verktökum ásamt verkum fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki. Hjá Hasar vinna eingöngu faglærðir veggfóðrarar og dúkarar. Við leggjum allt kapp á að skila verkunum okkar á réttum tíma með faglegum vinnubrögðum.
Starfsmenn
Starfsmenn Hasar ehf eru alla jafna um fjórir til sex. Teymið samanstendur af löggiltum veggfóðrara og dúklagningameistara, lærðum veggfóðrara, dúklagningamönnum og konum ásamt nemum.
Mannauðurinn er mikilvægasti hluti fyrirtækisinns og eru starfsmenn Hasar ehf. með áratuga starfsreynslu í faginu.
Hilmar Hansson
Dúklagningameistari